fimmtudagur
.
jæja þá á að reyna starta þessu bob-blessaða bloggi... nú erum við búinn að koma okkur fyrir í reykjadalnum góða, kynnast aðeins samstarfsmönnum og komast að því hversu stórfurðulegir flestir þeirra eru, ég er aðeins smá furðulegur vegna stærðar minnar.
næturvaktirnar virðast ætla leggjast vel í okkur... sitjum hér í rólegheitum og hlustum á sigurrós og látum oss dreyma um skelduna
eftir næstu nótt tekur við fimm daga frí og gerum við ráð fyrir að eyða því inná akureyrinni, ætlaði nú að hjálpa henni jónbjörgu að laga til í geymslunni þar sem ég fékk að geyma örfáa kassa í geymslunni... einnig verður líklega litið á bíladaga þar sem gys verður gert að þeim eyða milljörðum í að keyra á ofsahraða niður eina götu og síðan róilega baka og síðan á ofsahraða aftur niður hana... gaman af því
það væri kannski ekki vitleysa...
einnig vil ég benda á að snillingurinnTerry Pratchett var valinn af einhverjum breskum fíblum annar besti núlifandi breski rithöfundurinn, varð annar á eftir harry potter kellingunni.. hann er náttúrlega mun betri en hún
"Yes and how many times must the cannonballs fly
Before they're forever banned
The answer my friend is blowin' in the wind"
...waiting in the sky
Jæja þá er ég mættur aftur í bloggið með nýja síðu, var löngu búinn að gleyma passwordinu og því öllu á gömlu blogcentral síðunni.
Mun ég vera nú staddur á Laugum í reykjadalnum góða, þar sem ég mun vinna sem næturvörður á hótelinu í sumar og ætti þvi að geta bloggað eitthvað
anywho vonandi er þetta ágætis byrjun á takk...
Og já aðalmálið í sumar er náttúrlega roskilde, því þangað mun kappin fara eftir 24 daga vei
og þar verður notið hinna fögru tóna frá t.d. deftones og tool
segjum þetta gott í bili... spurning um einhverjar p.ælingar í fyrramálið